Nærandi umhverfi

Í þessu myndbandi tala ég um áhrif umhverfis á líðan. Rannsóknir í umhverfissálfræði og geðheilbrigðisfræðum benda til þess að fallegt, rólegt og hreint umhverfi hafi veruleg áhrif á andlega líðan. Þetta snýst ekki aðeins um fagurfræði heldur um það hvernig umhverfið hefur bein áhrif á taugakerfið, streitustig og tilfinningalegt jafnvægi.

Kenningar eins og Attention Restoration Theory lýsa því hvernig náttúruleg rými hjálpa til við að endurheimta hugarró og draga úr andlegri þreytu. Að vera í umhverfi sem fangar athygli án áreitni (soft fascination) dregur úr streitu og eykur einbeitingu.

Þegar við röðum hlutum af alúð, hleypum birtu að, veljum liti sem næra og höfum í kringum okkur hluti sem gleðja hjartað, sköpum við rými sem styður við innri ró. Lítil atriði geta skipt miklu máli: fersk blóm, kerti, mjúk teppi, hreint og hlýlegt andrúmsloft.

Fallegt umhverfi er ekki markmið í sjálfu sér, heldur skapar aðstæður fyrir ró, sköpun og vellíðan. Þegar við gefum okkur tíma til að móta rýmið okkar af alúð, erum við í raun að segja: Hér vil ég vera. Hér má mér líða vel.

Next

Við erum ekki hugsanir okkar